ÖSE-þingið 2001

Fimmtudaginn 28. febrúar 2002, kl. 18:22:44 (5418)

2002-02-28 18:22:44# 127. lþ. 85.10 fundur 519. mál: #A ÖSE-þingið 2001# skýrsl, MS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 127. lþ.

[18:22]

Magnús Stefánsson:

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir skýrslu Íslandsdeildar ÖSE-þingsins fyrir árið 2001.

Aðild að Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, áður Ráðstefnu um öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, eiga 55 ríki Evrópu og Norður-Ameríku. Stofnunin starfar á grundvelli Helsinki-sáttmálans frá árinu 1975. Henni er ætlað að stuðla að friði, öryggi og samvinnu ríkja í Evrópu og standa vörð um virðingu fyrir mannréttindum íbúa álfunnar.

Undanfarin ár og missiri hefur framkvæmd Dayton-samkomulagsins í Bosníu og Hersegóvínu og friðargæsluverkefni í Kosovo-héraði verið langveigamestu verkefni ÖSE, en á þessum stöðum hefur stofnuninni verið falið að hafa umsjón með framkvæmd kosninga, fylgjast með mannréttindamálum, byggja upp réttarkerfi og frjálsa fjölmiðla og aðstoða við gerð samninga um traustvekjandi aðgerðir og takmörkun vígbúnaðar. Þá hefur ÖSE tekið virkan þátt í framkvæmd stöðugleikasáttmála fyrir Suðaustur-Evrópu sem tók gildi 10. júní 1999 og ÖSE á aðild að, einkum þeim hluta framkvæmdar sáttmálans er snýr að mannréttindum og lýðræðisþróun en jafnframt í öryggismálahlutanum. Umsvif ÖSE í Kosovo-héraði eru afar fyrirferðarmikil í starfi stofnunarinnar en hlutverk ÖSE þar hefur aðallega miðast að lýðræðisþróun, góðri stjórnsýslu, framkvæmd kosninga og kosningaeftirliti, og stuðningi við frjálsa fjölmiðla.

Pólitískur órói og vopnuð átök milli stjórnarhers fyrrum Júgóslavíulýðveldisins Makedóníu og skæruliðasveita albanska minni hlutans í landinu ógnuðu mjög stöðugleika í suðausturhluta álfunnar framan af árinu. ÖSE átti stóran þátt í því, ásamt NATO, Evrópusambandinu og öðrum fjölþjóðastofnunum, að koma í veg fyrir að umfangsmikil átök brytust út milli þjóðernishópanna sem landið byggja. Í lok ársins hafði stofnunin aukið mjög við viðbúnað sinn í landinu og sinnti þar eftirlitsverkefnum á borð við m.a. afvopnun skæruliða og réttindi minnihlutahópa. Af öðrum málefnum sem bar hátt í störfum ÖSE á árinu má nefna stöðu mála í Norður-Kákasushéraðinu og lýðræðisþróunina í Hvíta-Rússlandi. Þá höfðu afleiðingar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin í septembermánuði mikil áhrif á störf ÖSE líkt og annarra samevrópskra stofnana og á fundum ráðherranefndar og ÖSE-þingsins var lýst yfir eindregnum stuðningi við hina alþjóðlegu baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi.

Viðvarandi átök á Balkanskaga, hryðjuverk og mannréttindi í Evrópu, voru jafnframt meginmálin á vettvangi ÖSE-þingsins. Þema ársfundar þingsins, sem haldinn var í París í júlí sl., var umfjöllun um öryggismál og hættuástandsstjórnun í Evrópu og hlutverk ÖSE í þessum málaflokki á nýrri öld.

Skipan Íslandsdeildar ÖSE-þingsins var sem hér segir á árinu 2001:

Fram til 26. apríl voru aðalmenn Guðjón Guðmundsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks, formaður, Jónína Bjartmarz, þingflokki Framsóknarflokks, varaformaður, og Ásta R. Jóhannesdóttir, þingflokki Samfylkingar. Varamenn voru Pétur Blöndal, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Lúðvík Bergvinsson, þingflokki Samfylkingar, og Ísólfur Gylfi Pálmason, þingflokki Framsóknarflokks.

Eftir að Magnús Stefánsson tók sæti á Alþingi, tók hann jafnframt sæti Jónínu Bjartmarz í Íslandsdeildinni og tók þá Ásta R. Jóhannesdóttir við varaformannsstöðu.

Kosið var í nýja Íslandsdeild í upphafi 127. þings. Fulltrúar í Íslandsdeild voru hinir sömu og á afstöðnu þingi en 10. október tók Magnús Stefánsson við formennsku af Guðjóni Guðmundssyni. Frá og með 10. október voru aðalmenn Íslandsdeildarinnar því Magnús Stefánsson formaður, Ásta R. Jóhannesdóttir varaformaður og Guðjón Guðmundsson.

Andri Lúthersson var ritari Íslandsdeildarinnar.

Um starfsemi Íslandsdeildarinnar á árinu 2001 er það að segja að dagana 22.--23. febrúar sl. fundaði stjórnarnefnd ÖSE-þingsins í Vín. Fundinn sótti af hálfu Íslandsdeildarinnar Guðjón Guðmundsson, þáv. formaður, auk ritara. Helsta málefni fundarins voru fyrirhugaðar breytingar á starfsreglum ÖSE-þingsins en fyrir fundinn höfðu verið lögð drög að umfangsmiklum breytingum sem m.a. gerðu ráð fyrir að auka umfang starfs þingsins með þeim hætti að breyta hinum árlegu stjórnarnefndarfundum í febrúarmánuði í eiginlegan þingfund þar sem stjórnarnefndin og allar málefnanefndir þingsins kæmu saman og ræddu brennandi mál og ættu þann kost að geta lagt spurningar fyrir embættismenn ÖSE.

Á fundinum fluttu embættismenn ÖSE framsögur þar sem farið var yfir árangur starfs stofnunarinnar í nokkrum aðildarríkjum, svo sem kosningaeftirlit í Aserbaídsjan, Bosníu og Hersegóvínu og Serbíu, og á hinum ýmsu málefnasviðum, svo sem fjölmiðlun og mannréttindum. Á fundinum var og talsvert rætt um þá ógn sem stafaði af starfsemi skipulegra skæruliðahópa í Suðaustur-Evrópu.

Á fundinum greindi forseti ÖSE-þingsins stjórnarnefndinni frá áhersluatriðum sínum og lagði mikla áherslu á að taka yrði starfsemi þingsins til gagngerrar endurskoðunar þar sem grundvallarspurningum líkt og hvert hlutverk þess ætti að vera yrði svarað. Þá taldi hann að mun meira yrði að gera til að tengja ályktanir ÖSE-þingsins við löggjöf í aðildarríkjum ÖSE meðal annars með þeim hætti að á þjóðþingum inntu þingmenn ráðherra eftir svörum um málefni sem falla undir verksvið ÖSE. Sagðist hann og binda miklar vonir við að með breytingum á starfsháttum þingsins styrktist starf þess til muna.

Fyrir fundinn höfðu verið lagðar fram umfangsmiklar breytingartillögur framkvæmdastjórnar við starfsreglur þingsins og voru þær samþykktar samhljóða á stjórnarnefndarfundinum. Ákveðið var að efna til sérstakra vetrarfunda þar sem málefnanefndir þingsins kæmu saman auk hinna hefðbundnu stjórnarnefndarfunda. Fundir þessir yrðu í Vínarborg og stæðu ekki lengur en þrjá daga í senn. Megintilgangur fundanna yrði að ræða og meta starf ÖSE á því tímabili sem liðið er frá ársfundinum og væri ætlunin að fundahöldin yrðu til þess að styrkja tengsl stofnunarinnar og þingsins. Þá ákvað stjórnarnefndin að breyta starfsreglum um breytingartillögur og utandagskrárumræður. Var ákveðið að breytingartillögur við ályktanadrög yrðu lagðar fram 14 dögum fyrir ársfund og að tillögur að utandagskrármálum yrðu lagðar fram tímanlega fyrir ársfund. Var það mat embættismanna ÖSE-þingsins að samkvæmt tímamörkum þeim sem áður giltu hefði starfsfólk þingsins verið ófært um að afgreiða skjöl í tæka tíð. Þá var enn fremur samþykkt að fulltrúar á ÖSE-þinginu gætu hvenær sem væri sent formanni ráðherraráðsins eða öðrum fulltrúum þess allt að þrjár fyrirspurnir árlega.

Dagana 6.--10. júlí var tíundi ársfundur ÖSE-þingsins haldinn í París. Fundinn sóttu af hálfu Íslandsdeildar Guðjón Guðmundsson formaður, Ásta R. Jóhannesdóttir varaformaður og Magnús Stefánsson, auk ritara. Þema fundarins var evrópsk öryggismál og hættuástandsstjórnun og hlutverk ÖSE á nýrri öld og tóku skýrslur og ályktanir nefndanna þriggja mið af meginþemanu, þar sem fjallað var m.a. um öryggis- og varnarmál Evrópu, samspili efnahagsþátta og umhverfisþátta í öryggismálum álfunnar og stöðu minnihlutahópa í aðildarríkjum ÖSE.

[18:30]

Á fundinum samþykktu þingmenn aðildarríkjanna samhljóða ályktun, sem lögð var fram að frumkvæði forseta ÖSE-þingsins, sem kvað á um að stefna bæri að því að styrkja gagnsæi og skilvirkni stofnunarinnar. Í ályktuninni kom fram að áður en ÖSE tæki mikilvægar ákvarðanir mundu ályktanir ÖSE-þingsins liggja til grundvallar og að skýrt yrði fyrir þinginu hvernig ákvörðunum yrði fylgt eftir. Þá mæltist ÖSE-þingið til þess að svo fremi sem ÖSE starfaði eftir samstöðureglunni yrði ógerlegt fyrir ríki að taka þátt í ákvörðunartökuferlinu með leynilegum hætti og að fyrirvara sem tiltekin ríki gerðu yrði að kunngera fyrir fundi. Ályktunin kvað jafnframt á um að þingið yrði upplýst um fjármál stofnunarinnar og að fundir fastanefndar ÖSE í Vínarborg yrðu opnir almenningi. Í þessu augnamiði hefur ÖSE-þingið samþykkt að koma á fót nefnd sem hefur gagnsæi og skilvirkni í sínum verkahring og mun hún starfa náið með embættismönnum ÖSE.

Ályktanir Parísarfundarins voru sameinaðar í eina stóra ályktun, Parísar-yfirlýsingu ÖSE-þingsins, sem samþykkt var á þingfundi 10. júlí. Auk ályktana málefnanefndanna þriggja innihélt Parísar-yfirlýsingin ályktanir um afnám dauðarefsingar, bann við notkun pyndinga, leiðir til að stemma stigu við mansali, baráttuna gegn alþjóðlegri skipulegri glæpastarfsemi og um fjölmiðlafrelsi. Í yfirlýsingunni var enn fremur vikið að aðstæðum og þeim vanda sem steðjar að í Suðaustur-Evrópu, Norður-Kákasushéraðinu, Moldavíu og Úkraínu.

Í fyrstu nefnd, nefnd um stjórnmál og öryggismál, var fjallað um skýrslu ungverska þingmannsins András Bársonys um öryggis- og varnarmál álfunnar og hlutverk ÖSE. Í ályktuninni var hvatt til þess að hugað yrði að því að ÖSE og jafnvel Sameinuðu þjóðunum yrði gert kleift að nýta getu Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum, samanber friðargæslu, hættuástandsstjórnun og framfylgd friðar. Nokkur umræða varð á nefndarfundum um inntak skýrslunnar og kom m.a. fram nokkur gagnrýni hjá formanni nefndarinnar á fyrirætlanir ESB í þessum málaflokki. Ræddi hann sérstaklega um stöðu þeirra sex aðildarríkja NATO sem stæðu utan ESB, t.d. Íslands. Þá var einnig vikið að mikilvægi þess að öryggis- og varnarmálastefna ESB lyti þingræðislegri stjórn og var fast kveðið á um að sú stjórn heyrði undir þjóðþing aðildarríkja ESB. Í ályktuninni var einnig kveðið á um að leitað yrði ýtrustu leiða til að styrkja eftirlit með viðskiptum með léttvopn. Þá urðu miklar umræður um fyrirætlanir Bandaríkjastjórnar í eldflaugavörnum en í ályktunardrögum fyrstu nefndar voru aðildarríki ÖSE hvött til að brjóta ekki í bága við ABM-sáttmálann, sem kveður á um bann við gagneldflaugum. Meginhluti bandarísku sendinefndarinnar sat hjá við atkvæðagreiðslu um greinina.

Í annarri nefnd, nefnd um efnahags-, vísinda-, tækni- og umhverfismál, var fjallað um skýrslu svissneska þingmannsins Barböru Haering um efnahagslega þætti öryggis- og varnarmála í álfunni. Í ályktuninni var hvatt til þess að aðildarríki ÖSE hygðu frekar að samspili umhverfislegra og efnahagslegra þátta við öryggi í Evrópu. Var kveðið sérstaklega á um að ríkari þjóðir Evrópu styddu við bakið á fátækari þjóðum Mið- og Austur-Evrópu með það fyrir augum að þau tækju fullan þátt í hinu hnattræna hagkerfi á jafnræðisgrundvelli. Var lögð sérstök áhersla á að hugað yrði sérstaklega að eflingu smárra og meðalstórra fyrirtækja og lagt til að alþjóðleg fjármagnsaðstoð tæki mið af þessum markmiðum. Þá var lagt til að löggjöf ríkja yrði löguð að forsendum kvenna og þeim gert unnt að stunda viðskipti til jafns á við karla. Enn fremur var vikið að alþjóðlegri glæpastarfsemi og mansali og aðildarríkin hvött til þess að gera sitt ýtrasta til að sporna við þeirri þróun. Jafnframt var ÖSE hvött til að efla samstarf við NATO, ESB, Sameinuðu þjóðirnar og frjáls félagasamtök til að ná þessum markmiðum.

Í þriðju nefnd, nefnd um lýðræði og mannréttindamál, var fjallað um skýrslu rússneska þingmannsins Elönu Mizulina um stöðu minnihlutahópa í Evrópu. Í ályktuninni voru stjórnvöld þeirra aðildarríkja ÖSE sem enn hafa ekki breytt löggjöf sinni um ríkisborgararétt og dvalarleyfi til samræmis við alþjóðlega staðla um vernd einstaklingsins og minnihlutahópa hvött til að gera það hið fyrsta. Var þar sérstaklega vikið að lagasetningu um forsendur þess að einstaklingar fengju ríkisborgararétt eða missi rétt til ríkisfangs. Í ályktun annarrar nefndar var enn fremur vikið að því að ÖSE bæri að styrkja úrbætur í dómskerfum aðildarríkja í Mið- og Austur-Evrópu og hvatt til þess að stofnunin styrkti enn fremur samstarf sitt við Evrópuráðið í þessum málaflokki. Þá var enn fremur hvatt til þess að öll aðildarríki ÖSE hrintu skuldbindingum sínum um fjölmiðlafrelsi og málfrelsi í framkvæmd hið fyrsta og styddu sjálfstæði fjölmiðla og fjölræði. Ásta R. Jóhannesdóttir var meðflutningsmaður nokkurra breytingartillagna í nefndinni og bar tvær þeirra fram á nefndarfundi. Voru þær samþykktar samhljóða.

Í Parísaryfirlýsingunni var ályktað um stöðu mála í Suðaustur-Evrópu og þar fordæmdi ÖSE-þingið ofbeldisverk albanskra skæruliðahópa í fyrrverandi Júgóslavíulýðveldinu Makedóníu, Kosovo-héraði og suðurhluta Serbíu. Hvatti þingheimur til að lögmætir pólitískir fulltrúar slavneskra og albanskra íbúa Makedóníu, auk fulltrúa annarra minnihlutahópa, settust að samningaborði hið allra fyrsta og greiddu þannig fyrir úrlausn hinnar afar brýnu ágreiningsefna þjóðernishópanna sem staðið hefðu friðarferlinu fyrir þrifum. Þá vék ályktunin einnig að mikilvægi stöðugleikasáttmálans fyrir frið, hagsæld og stöðugleika í þessum hluta álfunnar. Í ályktun þingsins um stöðu mála í Norður-Kákasushéraðinu voru hlutaðeigandi aðilar hvattir til að virða landamæri og leita allra leiða til að komast hjá svæðisbundnum óstöðugleika. Fagnaði þingið því að sendinefnd ÖSE í Tsjetsjeníu skyldi hafa snúið aftur til héraðsins og voru vonir bundnar við að það gæti orðið til friðsamlegrar úrlausnar mála. Í ályktun þingsins um Úkraínu var lýst yfir áhyggjum um þróun og úrbætur í lýðræðis- og efnahagsmálum landsins.

Adrian Severin var endurkjörinn forseti ÖSE-þingsins á lokadegi þingsins og mun hann gegna stöðunni til næsta þingfundar sem haldinn verður í Berlín í júlí 2002. Þá var kosið í þrjár stöður varaforseta þingsins. Flest atkvæði hlutu bandaríski þingmaðurinn Alcee Hastings, finnski þingmaðurinn Kimmo Kiljunen og tyrkneski þingmaðurinn Ahmet Tan.

Loks héldu þingkonur sérstakan fund þar sem m.a. var fjallað um stöðu kvenna innan þingsins. Fram kom að konur væru einungis í um helmingi landsdeildanna og voru konur sérstaklega hvattar til að gefa kost á sér í laus embætti innan þingsins. Á fundinum vakti Ásta R. Jóhannesdóttir athygli á átaksverkefni því sem íslensk stjórnvöld stóðu fyrir árið 1995 og miðaði að því að auka hluta kvenna í stjórnmálum. Átakið vakti mikla athygli fundarmanna.

ÖSE-þingið hefur frá upphafi tekið virkan þátt í kosningaeftirliti og lagt áherslu á mikilvægi þess að efla lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum. Jafnframt hefur ÖSE hvatt þingið til að sinna þessu starfi. Árið 2001 tók ÖSE-þingið m.a. þátt í kosningaeftirliti í Serbíu, Kosovo-héraði, Aserbaídsjan og Svartfjallalandi.

Íslandsdeildin tók þátt í kosningaeftirliti ÖSE-þingsins í Svartfjallalandi á liðnu ári og annaðist Jónína Bjartmarz það verkefni. ÖSE lagði það mat á framkvæmd kosninganna að þær hefðu uppfyllt alþjóðleg skilyrði um lýðræðislegar kosningar.

Þá stóð ÖSE-þingið fyrir málþingi um mansal og skipulagða glæpastarfsemi í Portúgal dagana 4.--5. okt. 2001 í samvinnu við portúgalska þingið. Var stjórnarnefndarfundur haldinn jafnhliða málþinginu og var þar samþykkt einróma ályktun um stuðning við Bandaríkjastjórn í viðleitni sinni að uppræta alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Í ályktuninni voru ríkisstjórnir allra aðildarríkja ÖSE jafnframt hvattar til að leggja sitt af mörkum í þessari baráttu.

Þess ber að geta að nýverið var í fyrsta sinn efnt til vetrarfundar ÖSE-þingsins í Vínarborg. Tókst framkvæmd hans með miklum ágætum. Árangur af fundum þessum er einkum að efla tengslin milli embættismanna ÖSE og fulltrúa ráðherraráðsins og þingmanna. Á þetta hefur þótt skort á undanförnum árum og er ljóst að vetrarfundirnir eru markviss leið til að auka upplýsingaflæði milli þingsins og stofnunarinnar og vettvangur til að finna sameiginlegan flöt á ágreiningsmálum.

Herra forseti. Að lokum má geta þess að afar farsælt samstarf hefur verið milli Íslandsdeildarinnar og fastanefndar Íslands hjá ÖSE. Fastanefndin er staðsett í sendiráði Íslands í Vínarborg og innir fastanefndin þar af hendi afar mikilvægt starf. Þykir Íslandsdeildinni rík ástæða til að vekja athygli á því jafnframt því að þakka fyrir þau störf.

Ég vil að lokum þakka samnefndarmönnum mínum í Íslandsdeildinni og starfsmanni deildarinnar fyrir ánægjulegt samstarf og vænti góðs af því framvegis.