Magnús Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Aðkoma Íslandsdeildarinnar er fyrst og fremst í gegnum ÖSE-þingin. Þar höfum við aðgang að umræðum, tillögugerð og slíku varðandi öll þessi mál. Síðan er ljóst að fastanefnd Íslands hjá ÖSE í Vínarborg tekur virkan þátt í starfsemi ÖSE. Það er ljóst að okkar menn leggja þar mikið af mörkum og taka virkan þátt í því starfi. Ég hygg þannig að Ísland komi áherslum sínum skýrt fram í þessu starfi, enda er ljóst að á vettvangi ÖSE getum við Íslendingar látið verulega til okkar taka. Það er líka ljóst að starfsemi ÖSE hefur vaxið og mun eflaust vaxa og eflast á næstu árum. Það er góð reynsla t.d. þar sem ÖSE hefur látið til sín taka á Balkanskaga og við slíkar aðstæður. Við Íslendingar tökum virkan þátt í því og þar er okkar fólk að störfum. Við eigum brýnt erindi á vettvangi ÖSE og getum eins og ég sagði lagt ýmislegt af mörkum í bæði umræðum og verklegri starfsemi.