Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var reyndar nefnt við mig áður en ég fór í andsvarið að ekki þýddi að ræða þetta við hæstv. sjútvrh. Hann hefði haldið þessu fram um nokkuð langt skeið og hann neitaði algerlega að skilja það sem fram kemur í skýrslu auðlindanefndar og hann neitaði að taka þessum rökum. Hins vegar er kannski að mörgu leyti eðlilegt að hann grípi hvert það hálmstrá sem hann getur fundið til að tengja fleiri við þær hugmyndir sem hann leggur hér fram. Það er út af fyrir sig eðlilegt hjá manni sem er upp við vegg og hefur í sjálfu sér ekkert annað fram að færa en að snúa út úr niðurstöðu auðlindanefndar.
Ég sat hins vegar í nefndinni, sat þá rúmlega 70 fundi sem voru haldnir. Við ræddum þetta fram og til baka og ég verð að segja alveg eins og er, virðulegi forseti, að sá er hér stendur var á vettvangi og tók þátt í þessari umræðu. Og ég frábið mér bara --- ég ætla nefnilega ekki að gera hæstv. ráðherra það upp að hann geri sér ekki grein fyrir því að þeir sem voru á vettvangi eru betri vitni eða vætti um hvað átti sér stað heldur en þeir sem sitja úti og ætla nú að túlka þetta eins og hér hefur verið reynt.