Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Það eru þrjár spurningar sem ég nam frá hv. þm., þ.e. hvort gjaldið væri frádráttarbært frá skatti. Það er kannski ekki alveg rétt að orða það þannig. Það telst auðvitað til útgjalda fyrirtækisins og dregst frá tekjunum sem kostnaður áður en hann kemur til skattlagningar.
Síðan spurði hv. þm. hvort betra væri að fara þá veiðigjaldsleið sem væri í frv. gagnstætt því að fara þá leið sem hann hefur verið að kynna með því eða dreifa þessu til einstaklinganna, þá held ég að svo sé. Ég held að meiri stöðugleiki sé fólginn í þeirri tillögu sem hér er lögð til og að það skipti gríðarlega miklu máli fyrir atvinnugreinina sem slíka, fyrir hagkerfi þjóðarinnar og auðvitað fyrir þær byggðir sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi.
Í þriðja lagi spurði hann um sjómannaafsláttinn. Það má auðvitað margt um sjómannaafsláttinn segja. Hann er fyrst og fremst skattamál á sviði fjmrh., en ég lít ekki á sjómannaafsláttinn sem styrk til úgerðarinnar. Ég á mjög erfitt með að sjá það, jafnvel þótt sjómannaafslátturinn yrði lagður niður, að þá mundi það hafa þau áhrif að einhverjir hættu að sækja sjó. Mér sýnist að sjómenn á Íslandsmiðum svona almennt og yfirleitt hafi það góðar tekjur að sjómannaafslátturinn ríði ekki baggamun í því tilfelli.