Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson spyr um NMT-farsímakerfið og fyrsta spurningin er: ,,Hvernig verður staðið að uppbyggingu NMT-farsímakerfisins um landið á næstu árum?``
Svar mitt er svohljóðandi:
Landssími Íslands hf. hefur eitt fjarskiptafyrirtækja leyfi til þess að starfrækja farsímaþjónustu á 450 MHz tíðnisviðinu. Leyfið var veitt af samgrh. og staðfest við breytingar á Póst- og símamálastofnun í Póst og síma hf. í lok ársins 1996. Leyfið var án skilyrða. Eftir að Póst- og fjarskiptastofnun tók til starfa var hafist handa við að endursemja leyfi Landssíma Íslands hf. með sundurliðaðri ákvæðum en áður var að finna í leyfinu og var nýtt leyfi gefið út í lok júlímánaðar árið 1998. Þar er ákvæði um að þjónustusvæði NMT-farsíma skuli vera a.m.k. eins og það er við útgáfu leyfisins en einnig segir frá því hvernig staðið skuli að málum ef Landssími Íslands hf. óskar eftir því að draga úr þjónustu eða leggja hana niður.
Leyfisbréf Landssíma Íslands hf. var endurnýjað 5. júní 2001 og er þar skerpt á ákvæðum um lokun þjónustu. Í fyrsta lagi skal tilkynna Póst- og fjarskiptastofnun með tveggja ára fyrirvara um ósk um lokun en þó má ekki leggja fram slíka beiðni fyrr en 1. janúar 2004. Póst- og fjarskiptastofnun getur frestað lokun um tvö ár til viðbótar við fyrrnefndan tveggja ára uppsagnarfrest, enda standi notendum ekki til boða annar kostur á farsímaþjónustu í 450 MHz tíðnisviðinu.
Enn sem komið er hefur Póst- og fjarskiptastofnun ekki borist ósk frá Landssímanum um að veita heimild til þess að draga úr þjónustu eða loka henni. Ekki er hægt að áætla með neinni nákvæmni hversu stór hluti af landinu fellur undir þjónustusvæði NMT-450. Landssími Íslands sýnir á vefsíðu sinni útbreiðslumynd NMT-þjónustu og sjást þar nokkur svæði sem NMT nær ekki til. NMT-þjónustan nær hins vegar út á haf og þjónar vel skipum á nærmiðum með fáum undantekningum.
Á því tíðnisviði sem hér um ræðir er útbreiðsla á radíóbylgju í sem næst beinni línu og í íslensku landslagi er óhjákvæmilegt að göt séu í þjónustusvæðinu á mörgum stöðum umfram þau svæði sem sýnd eru á kortinu.
Fjöldi notenda í NMT-þjónustunni hefur verið milli 25--30 þúsund undanfarandi ár sem er býsna há tala. Samkvæmt upplýsingum frá Landssíma Íslands voru notendur 26.604 í lok þriðja ársfjórðungs 2001 og hafði fækkað nokkuð frá því sem mest var.
Ég vil, herra forseti, undirstrika að ég tel að sjálfsögðu að þetta sé afskaplega mikilvæg þjónusta og það þurfi að líta til þess hvað kæmi í staðinn ef breytingar yrðu.
Í annan stað er spurt: ,,Hafa verið sett fram markmið um útbreiðslu þess í framtíðinni?``
Svar mitt er að talsverðar umræður eru í gangi erlendis og hér innan lands um framtíð NMT-450 farsíma sem notar hliðræna tækni öfugt við GSM sem byggir á stafrænum aðferðum sem gerir erfiðara að hlera símtöl og svindla á kerfinu. Líklegast er það einungis spurning um það hvenær NMT verður lagt niður í þeim fáu löndum sem enn reka NMT-þjónustu. Í Noregi hefur eitt fyrirtæki leyfi til að reka NMT-þjónustu. Leyfi þess rennur út í árslok 2003 og það hefur sótt um framlengingu í allt að tvö ár. Norska póst- og fjarskiptastofnunin hefur lýst því yfir að umræddu tíðnisviði verði úthlutað í bútum og opnað nýjum notendum einhvern tíma á tímabilinu 2004--2005. Hugmyndir hafa komið upp t.d. í Svíþjóð um að hanna GSM-450 farsímakerfi og annars staðar hefur verið rætt um að TETRA-farsímakerfi gæti komið að einhverju leyti í stað NMT-450. Innan Alþjóðafjarskiptasambandsins hafa komið fram hugmyndir um að leggja 450 MHz tíðnisvið undir 3. kynslóð farsíma. Engar ákvarðanir liggja fyrir í þessum málum. Framleiðsla á farsímum fyrir NMT hefur dregist mikið saman. Ljóst má vera að þar eð notendur NMT-farsíma eru aðeins rúmlega 25 þús. getur ekki verið fjárhagslega hagkvæmt að halda áfram uppbyggingu netsins að mati þeirra sem best þekkja. Póst- og fjarskiptastofnun sér ekki grundvöll til að gera slíka kröfu til Landssíma Íslands hf. nema opinbert framlag standi til boða.
Einnig ber að hafa í huga að á mörgum þeim stöðum sem eru utan þjónustusvæðis er engin aðstaða fyrir hendi til þess að reka radíóstöðvar auk þess sem mjög dýrt getur verið að koma slíkum stöðvum í samband við miðstöð kerfisins. Efasemdir eru uppi um að frekari uppbygging NMT-450 netsins sé líkleg nema aðstæður breytist verulega frá því sem nú er. Þessar upplýsingar eru vissulega slæmar í raun og veru fyrir notendur NMT-kerfisins og ég mun á næstunni láta Póst- og fjarskiptastofnun fara rækilega yfir það hvernig við getum tryggt þessa þjónustu til frambúðar og hvaða leiðir við getum farið því að ljóst er að mjög er treyst á NMT-kerfið og þess vegna þarf að finna lausnir sem koma í staðinn fyrir það ef það gengur sér til húðar.