Skipun rannsóknarnefndar í málefnum Landssímans og einkavæðingarnefndar

Miðvikudaginn 06. mars 2002, kl. 15:00:40 (5684)

2002-03-06 15:00:40# 127. lþ. 90.1 fundur 554. mál: #A skipun rannsóknarnefndar í málefnum Landssímans og einkavæðingarnefndar# þál., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 127. lþ.

[15:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðan fer fram á grundvelli 77. gr. þingskapa. Samkomulag er milli þingflokka um að ræðutími verði 20 mínútur á hvern þingflokk, sbr. 80. gr. þingskapa. Meðan umræðunni er útvarpað skiptist hún í tvær umferðir, tíu mínútur í hvorri umferð. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstfl., Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsfl. og Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Samfylkinguna talar í fyrri umferð Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv., en í síðari umferð Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl., og Guðmundur Árni Stefánsson, 6. þm. Reykn. Fyrir Sjálfstfl. talar í fyrri umferð Sturla Böðvarsson samgrh. en í síðari umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Reykn., og Vilhálmur Egilsson, 1. þm. Norðurl. v. Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs verða í fyrri umferð Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., og Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v., í síðari umferð. Fyrir Framsfl. talar Guðni Ágústsson landbrh. í fyrri umferð en Jónína Bjartmarz, 16. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir Frjálslynda flokkinn talar í fyrri umferð Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., en Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., í síðari umferð.