Skipun rannsóknarnefndar í málefnum Landssímans og einkavæðingarnefndar

Miðvikudaginn 06. mars 2002, kl. 15:10:52 (5686)

2002-03-06 15:10:52# 127. lþ. 90.1 fundur 554. mál: #A skipun rannsóknarnefndar í málefnum Landssímans og einkavæðingarnefndar# þál., samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 127. lþ.

[15:10]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Hér er til umræðu tillaga þingmanna Samfylkingarinnar um skipun rannsóknarnefndar til að rannsaka embættisfærslu ráðherra í málefnum Landssímans og einkavæðingarnefndar og meinta óeðlilega rekstrar- og viðskiptahætti stjórnenda fyrirtækisins.

Landssími Íslands er öflugt fyrirtæki sem hefur yfirburðastöðu á íslenskum fjarskiptamarkaði. Fjárhagsstaða fyrirtækisins er traust. Tæknileg uppbygging þess er með því besta sem gerist og innan þess er mikil þekking á fjarskiptamarkaðnum. Fyrirtækið hefur á að skipa góðu starfsfólki sem hefur ásamt stjórn fyrirtækisins þrátt fyrir mikið öldurót náð mjög góðum árangri líkt og rekstur þess og afkoma sýnir.

Hins vegar þarf fyrirtæki eins og Landssíminn sífellt að endurskoða markmið sín og stefnu. Það er hlutverk stjórnar fyrirtækisins í samráði við eigendur að móta stefnuna og sjá til þess að rekstur fyrirtækisins gangi fram með eðlilegum og farsælum hætti.

Í þessu ölduróti kringum Landssímann völdu tveir stjórnarmenn sem jafnframt eru forustumenn innan Samfylkingarinnar að segja sig frá stjórnarstörfum. Aðrir stjórnarmenn hafa lýst því að eðlilegt væri að víkja á næsta aðalfundi og fært fyrir því fullgild rök. Í þessu ljósi og til þess að leitast við að skapa frið um félagið hef ég lýst því opinberlega að heppilegast sé að kjósa fyrirtækinu nýja stjórn á næsta aðalfundi sem haldinn verður nk. mánudag. Nýrrar stjórnar og forstjóra bíður það verkefni að stýra fyrirtækinu áfram á kröfuhörðum markaði svo það fái haldið forustuhlutverki sínu meðal íslenskra fjarskiptafyrirtækja, auki verðgildi sitt og haldi áfram að veita mikilvæga þjónustu við landsmenn alla. Því er það fullkomið vindhögg af hálfu Samfylkingarinnar að telja nauðsyn á því að skipa sérstakan pólitískan rannsóknarrétt sem eigi að hafa það að markmiði að endurreisa fyrirtækið eins og segir í greinargerð með tillögunni. Það sýnir ábyrgðarleysið hjá flutningsmönnum tillögunnar að tala um að endurreisa Landssímann, þetta fyrirtæki sem þekktir einstaklingar úr forustuliði Samfylkingarinnar sem sátu í stjórn Símans hafa lýst sem einstaklega vel reknu og öflugu og góðu fyrirtæki.

Með tillögu þeirri sem hér er til umræðu í dag er ekkert annað á ferðinni en pólitískur leikur til þess eins fallinn að koma höggi á ráðherra, draga úr trausti almennings á fyrirtækinu og sniðganga þann lögmæta vettvang sem Alþingi hefur sjálft ákveðið að sé eðlilegur í máli sem þessu, sem er meðferð Ríkisendurskoðunar.

Afstaða mín í þessu máli er skýr. Ég er andvígur því að skipuð verði pólitísk rannsóknarnefnd líkt og hér er til umræðu. Ástæðan er sú að Ríkisendurskoðun er að fara yfir öll þau atriði sem varða Símann og einkavæðingarnefnd og tiltekin eru í þáltill. Það er vilji minn, og ég legg á það áherslu, að skýr svör fáist við þeim álitaefnum sem hér eru til umfjöllunar og ég treysti Ríkisendurskoðun fullkomlega til að fara vandlega ofan í þessi mál í heild sinni.

Ríkisendurskoðun er um þessar mundir að fara yfir fjárhagsleg samskipti stjórnar fyrirtækisins við forstjóra og stjórnarformann. Þá liggur einnig fyrir að Ríkisendurskoðun er að skoða fjárhagsmálefni einkavæðingarnefndar í tengslum við einkavæðingu Landssímans. Því er nú þegar hafin yfirgripsmikil skoðun á öllum þeim þáttum þessa máls sem þáltill. nær til. Velta má fyrir sér hvort Samfylkingin sé meðvitað með þessari tillögu að draga athygli frá úttekt Ríkisendurskoðunar á málinu og hvort Samfylkingin sé með málflutningi sínum hér í dag að gera Ríkisendurskoðun, þessa mikilvægu stofnun Alþingis, tortryggilega í augum almennings.

Ég get tekið undir það sjónarmið sem fram kemur í greinargerð með þáltill. að nauðsynlegt sé að rannsaka þetta mál til hlítar, en undirstrika jafnframt og enn og aftur að lögum samkvæmt er Ríkisendurskoðun falið það hlutverk. Hún hefur sinnt þessu hlutverki sínu með miklum sóma. Stofnunin hefur reyndar sýnt það og sannað að hún er með mjög virkt og öflugt eftirlit líkt og henni er ætlað.

[15:15]

Vissulega má velta fyrir sér hvers vegna slíkar rannsóknarnefndir hafa ekki verið skipaðar í þinginu oftar en raun ber vitni en síðast mun það hafa gerst á miðjum 6. áratug síðustu aldar. Þingið hefur ekki valið þá leið heldur treyst Ríkisendurskoðun. Ég hef miklar efasemdir um það, með fullri virðingu fyrir þingmönnum, að þingmenn séu réttu einstaklingarnir til þess að rannsaka embættisfærslur ráðherra, einkavæðingarnefndar og verkstjórnenda fyrirtækja, og spyrja má þeirrar spurningar hvort líklegt geti talist að sátt geti náðst um niðurstöður slíkrar nefndarskipunar.

Herra forseti. Miklar breytingar hafa orðið á fjarskiptamarkaðnum á undanförnum árum, bæði í lagasetningu, tækniþróun og þjónustu. Það er að mínu mati mjög mikilvægt að samgrh. hafi öfluga forustu á sviði fjarskipta og upplýsingatækni og ég hef lagt á það ríka áherslu í starfi mínu. Með gildandi fjarskiptalögum sem ég beitti mér fyrir og tóku gildi 1. janúar 2000 var lagður grunnur að raunverulegri samkeppni í fjarskiptum á Íslandi, samkeppni sem nú er orðin að veruleika. Enn fremur tryggir fjarskiptalöggjöfin jafnan aðgang allra landsmanna að almennri fjarskiptaþjónustu á sambærilegum kjörum og ég tel mjög mikilvægt að tryggja það einnig í gagnaflutningum og þar hefur Landssíminn gengið á undan og styrkt stöðu okkar mjög hvað það varðar.

Í samræmi við lög hef ég sem samgrh. farið með eignarhlutinn í Landssímanum. Ég hef lagt mig fram um að skapa með löggjöf svigrúm og trausta aðkomu nýrra símafyrirtækja sem þurfa að keppa við Símann sem markaðsráðandi fyrirtæki. Ég tel að þetta hafi tekist sem sést best á vaxandi markaðshlutdeild nýju símafyrirtækjanna. Í ljósi þess að einkavæðingu Símans seinkar og vegna þess að fram undan eru miklar breytingar á fjarskiptasviðinu sem samgrh. verður að standa fyrir, m.a. með úthlutun leyfa fyrir þriðju kynslóð farsíma og aukinnar nýtingu ljósleiðara til sjónvarpssendinga, tel ég eðlilegt að meta það á næstunni hvort ekki sé fram undan rétti tíminn til þeirra breytinga að fjmrh. taki við eignarhlut ríkisins í Landssíma Íslands og fari með hann meðan ríkið á yfir höfuð hlut í þessu fyrirtæki. Þar með verði undirstrikaður sá skýri vilji stjórnvalda að ekki ríki tortryggni annarra fjarskiptafyrirtækja vegna eignarhluts ríkisins í Landssímanum. Hlutverk samgrh. verði enn sem fyrr að móta stefnu og skapa framtíðarlausnir á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni. Um slík grundvallaratriði er ég reiðubúinn að ræða við þingmenn en tel tíma Alþingis illa varið að ræða tillögur eins og þá sem hér er til umræðu frá Samfylkingunni og er sýndarmennska ein og til þess eins fallin að skaða Landssímann, þessa mikilvægu eign okkar.

Jafnframt vil ég árétta að það er ekki aðeins eðlilegt heldur beinlínis nauðsynlegt að ríkið hætti samkeppni við þá einstaklinga og fyrirtæki sem starfa á fjarskiptamarkaði. Því er stefna stjórnvalda um einkavæðingu Landssíma Íslands óbreytt. Sölu hlutabréfa ríkisins verður haldið áfram um leið og aðstæður á fjármálamarkaði leyfa og viðunandi verð fæst. Það er hins vegar mikilsvert verkefni stjórnar og stjórnenda að verja Símann og skapa starfsfólki hans vinnufrið.