Bindandi álit í skattamálum

Fimmtudaginn 07. mars 2002, kl. 11:25:42 (5716)

2002-03-07 11:25:42# 127. lþ. 91.6 fundur 316. mál: #A bindandi álit í skattamálum# (hækkun gjalds) frv. 18/2002, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 127. lþ.

[11:25]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breyting á lögum um bindandi álit í skattamálum. Nál. er frá efh.- og viðskn. sem hefur farið yfir þetta mál, sent það til umsagnar og fjallað um það á fundum. Málið er ekki flókið og nefndin gerir tillögu um að það verði afgreitt og samþykkt hér óbreytt.