Landgræðsluáætlun 2003 -- 2014

Fimmtudaginn 07. mars 2002, kl. 18:37:48 (5799)

2002-03-07 18:37:48# 127. lþ. 92.7 fundur 555. mál: #A landgræðsluáætlun 2003 -- 2014# þál., landbrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 127. lþ.

[18:37]

Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Svo fallegt kvæði og vel flutt í lok dags veitir manni hamingju og gerir að verkum að þrátt fyrir erfiði dagsins gengur maður léttstígur heim.