Fjárreiður ríkisins

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 17:14:33 (5913)

2002-03-11 17:14:33# 127. lþ. 94.6 fundur 581. mál: #A fjárreiður ríkisins# (Fjársýsla) frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[17:14]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):

Herra forseti. Það er þannig með bæði þessi mál að þeim er ekki lokið. Það er ekki komin niðurstaða í þau. Því má segja að það hafi e.t.v. dregist of lengi. En þetta er staðan.