Lyfjalög

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 20:35:57 (5954)

2002-03-11 20:35:57# 127. lþ. 94.15 fundur 601. mál: #A lyfjalög# (rekstur lyfjabúða o.fl.) frv. 63/2002, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[20:35]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í raun engu við þetta að bæta að öðru leyti en því að ég ítreka að einboðið er að fara yfir þær öryggiskröfur sem gerðar eru í þessu og m.a. það sem hv. þm. nefndi, þ.e. að geymsla pakkninga og lyfja sem hafa verið tekin til í lyfjabúðum og send, sé traust. Ég tek þessari ábendingu og endurtek að ég mun spyrjast fyrir um þann hátt sem hafður er á í þessu efni.