Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 21:45:28 (5976)

2002-03-11 21:45:28# 127. lþ. 94.17 fundur 545. mál: #A stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins# frv., Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[21:45]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Forseti minnir enn á að hæstv. iðnrh. sem hefur forræði þessa máls er viðstödd þessa umræðu og hljóta nú hv. þingmenn að treysta því að hæstv. ráðherra geti túlkað stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Eigi að síður hefur forseti gert ráðstafanir til að koma þeim skilaboðum til þeirra hæstv. ráðherra sem hér hafa verið nefndir að þingmenn hafi óskað eftir að þeir kæmu hér, ef í þá næst að segja.