Stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins

Mánudaginn 11. mars 2002, kl. 22:10:57 (5986)

2002-03-11 22:10:57# 127. lþ. 94.17 fundur 545. mál: #A stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins# frv., KolH (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 127. lþ.

[22:10]

Kolbrún Halldórsdóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Undir þessum lið um fundarstjórn forseta er eðlilegt að hv. þm. verði svarað þeim óskum sem lagðar voru fram í umræðum sem áður fóru fram undir þessum lið, hvort hæstv. ráðherrar sem kallað hefur verið eftir til umræðunnar, eru á leiðinni eða hvort við eigum von á því að halda umræðunni áfram án viðveru þeirra ráðherra sem kallaðir hafa verið hingað, þ.e. hæstv. samgrh., fjmrh. og forsrh.