Afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Þriðjudaginn 12. mars 2002, kl. 15:38:17 (6046)

2002-03-12 15:38:17# 127. lþ. 95.11 fundur 593. mál: #A afréttamálefni, fjallskil o.fl.# (ítala o.fl.) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.

[15:38]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Sums staðar er því þannig háttað að sveitarstjórnin ber allan kostnað við afrétti, bæði upprekstur, smölun og allan kostnað sem þar að lýtur og hefur svo lengi verið. Eins og ég sagði áðan er þessum kostnaði annars staðar deilt niður á bændur sem búa á lögbýlum.

Þetta frv. til laga mun sent til umsagnar til sveitarstjórna og við munum skoða þetta allt vel í hv. landbn.