Afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Þriðjudaginn 12. mars 2002, kl. 15:50:39 (6051)

2002-03-12 15:50:39# 127. lþ. 95.11 fundur 593. mál: #A afréttamálefni, fjallskil o.fl.# (ítala o.fl.) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.

[15:50]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég nefndi bara það sem stóð í 2. gr. frv. En auðvitað er þetta alveg hárrétt. Ég tel að lagabálkur um Landgræðsluna sem liggur nú fyrir þinginu sé mjög góð heildarlöggjöf um landgræðslu á Íslandi þannig að ég held að hún taki á þeim þáttum sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir var að ræða. En við eigum að sjálfsögðu eftir að fara vel yfir þessi mál bæði tvö og eigum eftir að fá sérfræðinga á þessu sviði til okkar og fá allar þær upplýsingar sem við getum og munum nýta okkur þær.