Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Engin fjarvinnsluverkefni voru flutt út á land á vegum iðn.- og viðskrn. á árinu 2001 né heldur á vegum stofnana eða fyrirtækja sem heyra undir ráðuneytin. Á vegum iðnrn. var á árinu 2001 unnið að gerð nokkurra tillagna um flutning fjarvinnsluverkefna út á land. Enn sem komið er hefur sú vinna ekki skilað árangri.
Þá hef ég lagt áherslu á að við gerð árangursstjórnarsamninga við forstöðumenn stofnana ráðuneytisins verði ákvæði um flutning verkefna út á land.
Í ársbyrjun 2001 voru starfsmenn Byggðastofnunar 22 og störfuðu átta þeirra á Sauðárkróki en 14 í Reykjavík. Starfsemi stofnunarinnar var öll flutt til Sauðárkróks á miðju ári 2001. Forstöðumaður rekstrarsviðs flutti frá Reykjavík en ráðið var nýtt starfsfólk í eftirfarandi störf á Sauðárkróki: Forstjóri, lögfræðingur, þrír lánasérfræðingar með viðskiptamenntun og fjórir starfsmenn til skrifstofustarfa, þar af einn rekstrarfræðingur. Starfsmannafjöldi á þróunarsviði stofnunarinnar var óbreyttur í árslok 2001 en þar starfa forstöðumaður, sex sérfræðingar og ritari. Byggðastofnun réði jafnréttis- og atvinnuráðgjafa til starfa með aðsetur á Blönduósi á árinu. Stofnunin réð atvinnuráðgjafa til starfa með aðsetur á Patreksfirði á árinu. Byggðastofnun flutti því eða réð starfsfólk í samtals 12 störf á árinu 2001.