Fyrirspyrjandi (Jón Bjarnason):
Herra forseti. Fjarskipti skipta miklu máli, bæði í samskiptum og öryggismálum. Strandamenn hafa samþykkt áherslur sínar og tillögur í byggðaáætlun. Í áherslum þeirra stendur m.a., með leyfi forseta:
,,Úrbætur í fjarskiptamálum á Ströndum eru mjög aðkallandi. Strandasýsla er t.d. eina svæði landsins sem ekki hefur aðgang að ljósleiðarasambandi Landssímans. Góð fjarskipti eru og verða grunnþáttur í rekstri fyrirtækja og eru öllu atvinnulífi jafnnauðsynleg og örugg raforka og gott vegasamband. Sömu möguleikar eiga að bjóðast um allt land til að nýta upplýsinga- og fjarskiptatækni og skapa ný störf á þessu sviði.``
Tillögur þeirra og áherslur lúta að því að leggja ljósleiðara um Strandasvæðið til að leysa vandamál í fjarskiptaþjónustu á Vestfjörðum og telja þeir knýjandi að úrbætur verði gerðar hið fyrsta með lagningu ljósleiðara frá Drangsnesi um Hólmavík að Brú í Hrútafirði. Það er eðlilegt að Strandamenn leggi áherslu á þetta því að hinir litlu en mikilvægu grunnskólar í innhreppum Strandasýslu eru háðir fjarkennslu.
Þá er og nefnt og lögð áhersla á, með leyfi forseta:
,,Áríðandi er með tilliti til almannavarna að í GSM-samband sé virkt á öllu Strandasvæðinu. Eftir að boðkerfi Landssímans var lagt niður er ekkert annað kerfi virkt til boðunar björgunarsveita eða slökkviliðs í Strandasýslu. Einnig er mjög brýnt að GSM-sendar verði settir víða upp þannig að samband náist hvarvetna með tilliti til öryggis ferðafólks.``
Herra forseti. Strandamenn hafa miklar áhyggjur af þessu. Því hef ég lagt spurningar fyrir hæstv. samgrh. um bætur á fjarskiptasambandi.
,,1. Hyggst ráðherra bregðast við vanda sem upp er kominn í öryggismálum á Hólmavík og ef til vill víðar þar sem boðkerfið sem áður var notað til boðskipta, t.d. milli lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita og sjúkrabíla, hefur verið lagt niður án þess að fullnægjandi eða aukið öryggi í boðsendingum komi í staðinn?
2. Mun ráðherra beita sér fyrir því að SMS-boðkerfið verði einnig sett inn á NMT-fjarskiptakerfið?
3. Hverjar eru áætlanir um að styrkja GSM-símasambandið norður Strandir, um Hólmavík, Drangsnes og yfir Steingrímsfjarðarheiði?`` --- því það er afar brýnt að styrkja það bæði fyrir samskipti og öryggi á svæðinu.
Herra forseti. Það er afar brýnt að á þessum öryggismálum verði tekið og því hef ég lagt þessar spurningar fyrir hæstv. samgrh.