Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Forseti vill láta þess getið að kl. 1.30 í dag, að loknu matarhléi, fer fram umræða utan dagskrár um minnisblað um öryrkjadóminn. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónasson. Hæstv. forsrh. Davíð Oddsson verður til andsvara.