Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég hlýt fyrst að láta í ljós undrun mína, eða kannski aðdáun á þessu nýja tungutaki sem orðið er í þinginu og hv. þm. notaðist við hér áðan: Ég vil beina því til sitjandi forseta. Venjan er að segja: Ég vil beina því til herra forseta eða hæstv. forseta. (Gripið fram í.) Ég veit satt að segja ekki hvernig hv. þm. skilur þetta orð, ,,sitjandi`` í þessu sambandi.
Á hinn bóginn hlýt ég líka að láta í ljós undrun mína yfir því að hv. þm. hefur ekki tekið eftir því að sá siður hefur nú verið í þinginu á þriðja ár að þingmönnum hefur gefist kostur á að tala um það sem efst er á baugi hverju sinni í upphafi þingfundar undir þessum lið, störf þingsins. Ég hef ekki fundið annað en að almenn ánægja sé með það, bæði hjá hv. þingmönnum, fjölmiðlum og ég tala nú ekki um kjósendum.