Sigríður A. Þórðardóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Það er þegar búið að taka fyrsta dagskrármálið á dagskrá og það er alveg ljóst að hér fer síðan fram efnisleg umræða af hálfu þingmanna Vinstri grænna í formi yfirlýsingar um það mál sem er búið að taka á dagskrá. Ég geri athugasemd við að staðið sé að málum með þeim hætti og legg til að við göngum til þeirrar dagskrár sem liggur hér fyrir. Forseti hefur þegar tekið fyrsta dagskrármálið á dagskrá.