Kristinn H. Gunnarsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég verð að segja að þetta er ákaflega undarleg umræða sem hér fer fram af hálfu þingmanna Vinstri grænna. Þeir koma hér upp í stríðum straumum og fara fram á að málið verði ekki tekið fyrir á dagskrá með þeim rökum að ekki sé ljóst hvort eða hvenær ráðist verði í þær framkvæmdir sem frv. gengur út á að heimila.
Ég legg áherslu á að málið er heimildarfrv. Í því felst ekki að við afgreiðslu þess eigi allt endilega að liggja fyrir, enda væri engin þörf á að flytja heimildarfrv. eins og alsiða er um mál ef slíkt ætti að vera skilyrði fyrir samþykkt málsins. Eitt er að veita ráðherra heimildina og síðan er annar hlutur hvenær reynir á að ráðherrann nýti hana. Þó að eitthvað sé óljóst um tímasetningar þá eru það engin rök fyrir því að fresta fyrirtöku á frv. sem er heimildarfrv.
Í öðru lagi vek ég athygli á því að fulltrúi Vinstri grænna í forsn. hefur ekki tekið til máls í þessari skrýtnu umræðu sem þingflokksformaður þeirra og formaður hafa staðið fyrir. Það er ákaflega einföld skýring á því vegna þess að sá maður er jafnframt fulltrúi flokksins í iðnn. og hann flytur nál. Hann er tilbúinn með sitt nál., hefur lokið sinni þinglegu vinnu og skilað af sér frá nefnd til þingsalarins áliti sínu og er tilbúinn til að mæla fyrir því samkvæmt því áliti sem er dags. 20. mars, eða í gær.
Það er líka heldur meira frá að segja í þessu nál., herra forseti, því að fulltrúi Vinstri grænna í forsn. og iðnn. eru með tillögu í málinu sem hann vill fá að flytja undir umræðu um málið. En félagar hans í þingflokknum vilja koma í veg fyrir að hann fái að flytja þá tillögu og mæla fyrir henni. Hvers konar samkomulag er í þessum þingflokki, herra forseti, þegar þingmenn Vinstri grænna standa í stólnum löngum stundum til að mæla gegn því að fulltrúi þingflokksins fái að tala fyrir tillögu sinni sem er á prentuðu þingskjali og þingmaðurinn bíður eftir að fá að mæla fyrir þegar umræður geta hafist?