Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það er athyglisvert hve upptekinn hv. þm. Hjálmar Árnason, formaður iðnn., var af afstöðu Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. Hann eyddi löngum kafla ræðu sinnar í að afflytja viðhorf okkar og afstöðu til þessa máls. Ég vil mælast til þess við hv. þm. að við höfum þetta þannig í þessari umræðu að við tölum fyrir okkar sjónarmiðum og hv. þm. tali fyrir sínum. Ég a.m.k. frábið mér að reyna að tala fyrir stefnu Framsfl. í þessum efnum.
Hv. þm. gerði mikið úr kostum rafvæðingar. Það er að sjálfsögðu rétt og ber ekki að draga úr því, að rafvæðing í landinu, virkjanir vítt og breitt um landið í upphafi síðustu aldar og síðar þar sem virkjað var fyrir kaupstaði og síðan rafvæðing sveitanna, var mikið framfaraspor. En að ætla sér að umskrifa söguna þannig, eins og hv. þm. og fyrrv. kennari reyndi í ræðu sinni, að velsæld á Íslandi væri þessu einu að þakka, er furðuleg sagnfræði. Ætli tilkoma vélbáta- og togaraútgerðar í byrjun 20. aldar hafi ekki skipt máli? Ætli endurtekin útfærsla landhelginnar hafi ekki lagt, umfram allt annað, grunn að velmegun þjóðarinnar? Tilkoma togaranna, skuttogaranna, frystiiðnaðarins o.s.frv.? Eða tilkoma atvinnugreina eins og ferðaþjónustunnar sem á árinu 2000 fór fram úr stóriðjunni og var gjaldeyrisaflandi þessarar þjóðar númer tvö á eftir sjávarútveginum.
Mærð hv. þm. þegar hann ræðir um Búrfell er athyglisverð. Er hv. þm. búinn að gleyma því að verðið sem Alusuisse borgaði fyrir rafmagnið frá Búrfelli mörg fyrstu árin var svo lágt að almennir notendur urðu að borga með því? Það var ekki fyrr en fyrirtækið var staðið að prettum, hækkun í hafi og hægt var að knýja það til nýrra samninga um að hækka orkuverðið sem þetta fór að verða þolanlegt. Myndin er því ekki eins einföld og hv. þm. vill vera láta í ofurkappi sínu við að fegra allt sem snýr að stóriðju og gleyma öllu öðru í landinu.