Kolbrún Halldórsdóttir (um fundarstjórn):
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forseti kveði upp úrskurð um þetta mál. Ég vil í tilefni orða hv. þm., formanns Samfylkingarinnar, segja það að þó að hv. þingmenn Samfylkingarinnar sem næstir eru á mælendaskrá séu sáttir við það að ráðherrann sé fjarstödd meðan þeir flytja ræður sínar er ég það ekki. Í ljósi þess sem hér hefur farið fram óska ég eftir því að hæstv. forseti kveði nú upp úrskurð sinn í þessu máli. Það er ljóst að hæstv. ráðherra mun koma hingað síðar í dag til starfa og mér sýnist krafan einboðin, að umræðunni verði í öllu falli frestað þar til hæstv. ráðherra mætir hingað til leiks aftur, og ég óska eftir úrskurði hæstv. forseta um það mál.