Norðurál

Mánudaginn 25. mars 2002, kl. 15:09:27 (6549)

2002-03-25 15:09:27# 127. lþ. 104.1 fundur 426#B Norðurál# (óundirbúin fsp.), LB
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur, 127. lþ.

[15:09]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Ég skil þá ummæli hæstv. viðskrh. þannig að ekki sé rétt það sem kom fram í fréttunum í gær og ég vitnaði til áðan þar sem því var haldið fram að það væri eiginlega fyrir neðan allar hellur ef hún mundi ekki ,,veita þeim jafnan og góðan aðgang eins og þeim aðilum sem ekki hafa staðið við sitt. Þessir aðilar hafa alltaf staðið við sitt,`` eins og hæstv. forsrh. sagði.

Ég skil þá orðræðu hæstv. iðn.- og viðskrh. þannig að þessi ummæli séu ekki rétt og þegar hafi verið hafist handa við að ræða við Norðurál um stækkun.