Karl V. Matthíasson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og góð svör. Hann hyggst taka vel og alvarlega á þessu máli, ekki veitir af. Í frétt þar sem talað var við Össur Lárusson framkvæmdastjóra Landssambands sauðfjárbænda hélt hann því fram að margir sauðfjárbændur, ef þetta héldi svona áfram, gætu hreinlega þurft að bregða búi, hætta framleiðslu á lambakjöti og útflutningurinn gæti hreinlega fallið niður til Evrópusambandslanda.
Þar með væru hundruð millj. kr. útflutningstekjur í hættu. Þetta er einmitt eini vaxtarbroddurinn, þ.e. í sauðfjárræktinni. Það er alveg ótrúlega undarlegt að sömu aðilar séu að framleiða kjöt á Ameríkumarkaðinn og eru að framleiða á Evrópumarkaðinn. Það eru nokkrar mótsagnir í þessu öllu saman.