Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég hafði flugufregnir af því að hæstv. landbrh. hefði haldið bændafund á Hvolsvelli um einmitt þessi mál og þar hefðu mætt 250 manns. Mér skildist að það hefði ekki verið tóm guðsblessun sem þar kom fram vegna þessa samnings. Ég vona að hæstv. ráðherra leiðrétti ef það er rangt hjá mér. Mér er sagt að þar hafi verið veruleg óánægja.
Vel getur verið að einhver hópur manna hafi ekki starfað eftir reglum, ekki haldið skýrslur o.s.frv., en þau bréf sem ég las upp úr eru ekki úr þeim hópi. Þau bréf og þau símtöl sem ég hef tekið mest mark á eru einmitt frá bændum sem hafa mjög lagt sig fram um að stunda bú sín vel. Annars væri ég ekki að færa boðskap þeirra hingað inn. Ég vona að hæstv. ráðherra geti tekið undir það með mér að það er nauðsynlegt að ná sátt um þessi mál. Það er a.m.k. sagt að málið hafi ekki verið kynnt rétt fyrir títt nefnda atkvæðagreiðslu. Þess vegna þarf að ræða málið upp á nýtt og ná um það sátt áður en við samþykkjum þennan samning frá Alþingi. Það er a.m.k. mín skoðun.