Skýrsla um ófrjósemisaðgerðir 1938--1975

Þriðjudaginn 26. mars 2002, kl. 10:31:57 (6679)

2002-03-26 10:31:57# 127. lþ. 105.91 fundur 437#B skýrsla um ófrjósemisaðgerðir 1938--1975# (aths. um störf þingsins), ÞSveinb
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 127. lþ.

[10:31]

Þórunn Sveinbjarnardóttir:

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs undir liðnum Athugasemdir um störf þingsins til að ræða störf þingsins. Svo bar til að í gær var skýrslu hæstv. heilbrrh. um ófrjósemisaðgerðir sem gerðar voru árin 1938--1975 dreift á borð hv. þm. Skýrslan var gerð að beiðni minni og nokkurra félaga minna úr Samfylkingunni en við höfum lagt þá beiðni fram þrisvar sinnum.

Með vísan til 46. gr. þingskapa vil ég beiðast þess af hæstv. forseta að hann taki skýrsluna á dagskrá þingsins fyrir lok 127. löggjafarþings þannig að hana megi ræða ítarlega, það hvernig bregðast skuli við henni og hvort hæstv. heilbrrh. hyggst bregðast við henni með einhverjum hætti.