Skýrsla um ófrjósemisaðgerðir 1938--1975

Þriðjudaginn 26. mars 2002, kl. 10:32:57 (6680)

2002-03-26 10:32:57# 127. lþ. 105.91 fundur 437#B skýrsla um ófrjósemisaðgerðir 1938--1975# (aths. um störf þingsins), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 105. fundur, 127. lþ.

[10:32]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Mikil vinna hefur verið lögð í þessa skýrslu á vegum heilbrrn. Hún hefur reyndar verið í vinnslu nokkuð lengi. Ég tel einboðið að ræða hana og er tilbúinn í þá umræðu hvenær sem er. Ég hef rætt það innan ráðuneytisins hvernig við gætum brugðist við eða sett af stað vinnu í framhaldi af þessari skýrslu, sem ég tel rétt að gera. Ég mundi þá gera nánari grein fyrir því þegar sú umræða færi fram.