Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Miðvikudaginn 03. apríl 2002, kl. 10:57:43 (6802)

2002-04-03 10:57:43# 127. lþ. 106.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 127. lþ.

[10:57]

Forseti (Halldór Blöndal):

Þá vinnst ekki tími til þess að fleiri taki til máls um störf þingsins þar sem 20 mínútur eru liðnar sem í þingsköpum eru ætlaðar til umræðu af þessu tagi.

Ég vil taka fram að gert er ráð fyrir því að ljúka umræðum um þetta mál í dag, og má því búast við kvöldfundi. Ég geri ráð fyrir því að fundi verði frestað kl. 12.30 og aftur verði haldið áfram þingfundum kl. 1.30.