Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 04. apríl 2002, kl. 11:05:20 (6897)

2002-04-04 11:05:20# 127. lþ. 109.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, ÁSJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 127. lþ.

[11:05]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Noral-verkefnið er í óvissu. Hér er verið að leggja drög að gríðarlegum náttúruspjöllum. Deildar meiningar eru um arðsemi verkefnisins. Við höfum ekki lokið vinnu við rammaáætlun um notkun vatnsafls og jarðvarma og mjög deildar meiningar eru um byggðaþróun sem afleiðingu af verkefninu. Þess vegna, virðulegi forseti, segi ég já um að vísa þessu frá.