Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 04. apríl 2002, kl. 11:12:46 (6904)

2002-04-04 11:12:46# 127. lþ. 109.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 109. fundur, 127. lþ.

[11:12]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Stuðningur minn við virkjun við Kárahnjúka hefur ávallt verið skilyrtur við það að tryggt væri að orkan frá Kárahnjúkavirkjun yrði nýtt til atvinnuuppbyggingar á Austurlandi. Nú er það mál allt í uppnámi. Meðan svo er mun ég ekki greiða þessu máli atkvæði og tek þá afstöðu að sitja hjá.