Búnaðargjald

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 12:05:25 (7083)

2002-04-08 12:05:25# 127. lþ. 114.22 fundur 600. mál: #A búnaðargjald# (gjaldstofn) frv. 59/2002, Frsm. DrH (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[12:05]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 84/1997, um búnaðargjald, með síðari breytingum, frá hv. landbn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið gesti á sinn fund. Umsögn um málið barst frá Bændasamtökum Íslands.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um búnaðargjald sem eiga að tryggja að búnaðargjald greiðist eingöngu af framleiðslu en ekki af öðrum þáttum og jafnframt að gjaldið reiknist aðeins einu sinni af sömu framleiðslu.

Fyrir nefndina hefur verið lögð ályktun búnaðarþings 2002 þar sem samþykkt var lækkun búnaðargjalds úr 2,55% í 2,00% en það felur í sér um 100 millj. kr. lækkun gjaldsins. Bændasamtök Íslands hafa óskað eftir að orðið verði við ályktun þessari og að breytingar á gjaldhlutfalli taki gildi við ákvörðun fyrirframgreiðslu á árinu 2003 og við álagningu gjaldsins á árinu 2004 vegna búvöruframleiðslu á árinu 2003.

Nefndin fellst á röksemdir Bændasamtaka Íslands og leggur til að búnaðargjald verði lækkað í 2,00%.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í þingskjali 1032.

Jónína Bjartmarz var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Guðjón A. Kristjánsson áheyrnarfulltrúi í nefndinni er samþykkur áliti þessu. Aðrir nefndarmenn eru samþykkir álitinu án fyrirvara.