Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 15:48:31 (7136)

2002-04-08 15:48:31# 127. lþ. 114.6 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv. 38/2002, landbrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[15:48]

Landbrh. (Guðni Ágústsson):

Hæstv. forseti. Ég álít það eitt af hlutverkum mínum sem alþingismanns að vinna með framtíðinni en ekki gegn henni. Ég vil styrkja atvinnulíf Íslendinga. Á síðustu sjö árum hefur, oft í andróðri í þinginu, tekist að skapa þann grundvöll að 15--20 þús. störf hafa orðið til í landinu. Atvinnuleysi er vart til lengur.

Vinir mínir í Vinstri grænum eru mér áttaviti hvert ég á að fara. Þess vegna segi ég já í þessu máli.