Svanfríður Jónasdóttir (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Hér er verið að lögfesta að stjórnsýslu og eftirliti með fiskeldi verði skipt milli tveggja ráðuneyta í blóra við ráðleggingar þeirra sem best til þekkja. Það er heldur ekki gert ráð fyrir að innheimt sé gjald fyrir leyfin né fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum, eftirsóttu rými í fjörðum okkar og flóum. Samfylkingin greiðir atkvæði gegn þessu frv. sem byggir bæði á úreltum hugmyndum og úreltri stjórnsýslu.