Umferðarlög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 17:02:03 (7156)

2002-04-08 17:02:03# 127. lþ. 114.27 fundur 652. mál: #A umferðarlög# (Umferðarstofa o.fl.) frv. 83/2002, GÖ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[17:02]

Guðrún Ögmundsdóttir (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er tiltölulega nýbúin að sjá þetta frv. en ég var að velta fyrir mér og langar þess vegna að spyrja hæstv. dómsmrh.: Er verið að snúa til baka með einkavæðingu Bifreiðaskoðunar hf.? Þá væri afskaplega fróðlegt að fá að vita ástæður fyrir því. Hefur hitt ekki virkað eða hefur þeirri starfsemi verið eitthvað ábótavant?

Þá verður að spyrja: Er búið að hafa samráð við starfsmenn um þessi mál? Hvað verður um þá starfsmenn sem núna vinna hjá háeffinu?