Umferðarlög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 17:04:42 (7158)

2002-04-08 17:04:42# 127. lþ. 114.27 fundur 652. mál: #A umferðarlög# (Umferðarstofa o.fl.) frv. 83/2002, GÖ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[17:04]

Guðrún Ögmundsdóttir (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get alveg verið sammála því að nauðsynlegt sé að samhæfa, gera hlutina skilvirkari og ekki hafa þá á of mörgum stöðum. Ég hef hins vegar örlitlar áhyggjur af þessu með starfsmennina og kannski er spurning um það hvernig þessi mál hafa verið rædd í þeim stofnunum sem nú á að samhæfa. Það væri því fróðlegt að fá upplýsingar um það hjá hæstv. ráðherra.