Umferðarlög

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 17:32:45 (7166)

2002-04-08 17:32:45# 127. lþ. 114.27 fundur 652. mál: #A umferðarlög# (Umferðarstofa o.fl.) frv. 83/2002, ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[17:32]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þetta mikið frekar. Ég held að þær tölur, sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon var með um slys á öðru ári eða 18--19 ára, hafi verið hærri fyrir tilkomu æfingaakstursins og það hefur sýnt sig að á þessu öðru ári hafa tölur lækkað eftir tilkomu æfingaakstursins.

Herra forseti. Ég vil vekja athygli þingmannsins á því að verið var að dreifa frv. á borðin um að leggja niður Þjóðhagsstofnun og síðan er hitt að frv. um að leggja niður Kvikmyndastofnun Íslands er líka á ferðinni í meðferð Alþingis og ég vænti þess að hv. þm. styðji þau frv.