Tækniháskóli Íslands

Mánudaginn 08. apríl 2002, kl. 22:06:44 (7220)

2002-04-08 22:06:44# 127. lþ. 114.31 fundur 649. mál: #A Tækniháskóli Íslands# frv. 53/2002, menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 114. fundur, 127. lþ.

[22:06]

Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil aðeins endurtaka það sem ég sagði, að það er vilji ráðuneytisins að koma til móts við skólann og hjálpa honum að leysa uppsafnaðan rekstrarhalla, en að því tilskildu að skólinn sýni og sanni að hann muni sem Tækniháskóli Íslands halda sig innan fjárheimilda.