Þuríður Backman:
Herra forseti. Hér hefur verið rædd samræmd samgönguáætlun til tólf ára og nú ræðum við um vegáætlun sem á eingöngu að taka til þessa árs. Það er af tæknilegum ástæðum eins og farið hefur verið hér yfir, að til að koma á samræmdri samgönguáætlun þarf að stilla af í tíma vegáætlun í langtímaáætluninni. Lagt er til að skera niður framkvæmdafé til vegagerðar og ég tek undir þá gagnrýni að þetta sé ekki rétti tíminn, miðað við að aðeins hefur hægst á hjólum atvinnulífsins og því ber að verja það að ekki hægi of mikið á.
Ástæðan fyrir niðurskurðinum er sögð sú að ekki hefur gengið eftir sala á ríkisfyrirtækjum. Slík spyrðing á milli sölu ríkisfyrirtækja og á jarðgangagerðar finnst mér ekki vera rétt. Ég ætla aðeins, herra forseti, að fara nokkrum orðum um jarðgangaáætlunina og öryggismálin, en láta þetta að öðru leyti vera nokkrar athugasemdir og bíða frekar síðari umr. Það á eftir að fara vel yfir þessa vegáætlun.
En hvað varðar jarðgangaáætlunina, þá er líklegt að þar verði um frestun að ræða. Hún er beintengd sölu ríkisfyrirtækjanna, en þau jarðgöng sem núna eru í undirbúningi, jarðgöng á Austurlandi milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar og fyrir norðan, svokölluð Siglufjarðargöng, eru samspyrt og þau á að bjóða út í einum pakka. Og, herra forseti, ég hef nefnt það áður að miðað við það ástand sem er á Austurlandi, þá verða nú þegar að koma inn örugg og stór verkefni og ég tel að jarðgangagerð á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar væri framkvæmd sem ríkisstjórnin ætti að beita sér fyrir. En ekkert er öruggt í hendi hvað varðar útboðið, að bjóða út saman þennan stóra jarðgangapakka. Það stendur misjafnlega á í verktakabransanum og það getur allt eins komið betur út að bjóða göngin út hvort í sínu lagi og ég tel rétt að leyfa frávik frá heildarútboði og sjá hvað kemur út úr því tilboði. Það er alveg hugsanlegt að ekki verði síðra fyrir ríkissjóð og framkvæmdaraðila að bjóða út hvort í sínu lagi. Þann valkost sjáum við ekki nema bjóða út með fráviki og sjá hvað kemur út úr tilboðunum.
En ég tek undir þær ábendingar sem hér hafa komið fram varðandi öryggisþætti í umferðinni. Þar þurfum við að huga að mörgum þáttum eins og einbreiðum brúm og við gætum horft til annarra þátta í ríkisútgjöldunum varðandi hugsanlegan niðurskurð eða hvar væri hægt að fá inn fé til vegagerðar til þess að skera ekki niður eins og nú er ætlað.