Flugmálaáætlun árið 2002

Þriðjudaginn 09. apríl 2002, kl. 18:37:14 (7341)

2002-04-09 18:37:14# 127. lþ. 115.16 fundur 681. mál: #A flugmálaáætlun árið 2002# þál. 27/127, GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 127. lþ.

[18:37]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þessi svör.

Annað atriði sem mig langar að víkja að og fá svar við frá hæstv. samgrh. varðar Ísafjarðarflugvöll og Þingeyrarflugvöll, hvort fyrirhuguð sé einhver frekari vinna við að skoða möguleika á næturflugi þangað. Ég veit um það sem búið er að gera og sú niðurstaða sem virðist liggja fyrir er sú að þetta verði ekki kostur í framtíðinni. Hefur hæstv. samgrh. hugsað sér að skoða það mál enn frekar?