Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Sem betur fer er áhugi fyrir því að fjárfesta í öðrum atvinnuvegum en stóriðju. Og áhugi ríkisstjórnarinnar stendur líka til þess, að sjálfsögðu. Það er nauðsynlegt að fjárfest sé í öllu því sem getur gefið af sér þá afkomumöguleika að viðkomandi fyrirtæki standi undir sér og geti borgað mannsæmandi laun. Þar gildir mestu að nýta þau tækifæri sem gefast en ekki að útiloka þau og segja svo í leiðinni: Við skulum gera eitthvað annað. Þannig gengur efnahagslífið ekki fyrir sig. Þess vegna er nauðsynlegt að nota þessa möguleika eins og aðra möguleika.
Hv. þm. sagði að vandamálið að því er varðar þessa stóriðju væri að viðkomandi vildi ekki fjárfesta á krónusvæði. Þessi stóru fyrirtæki eru tiltölulega lítið háð íslensku krónunni. Þau selja megnið af afurðum sínum erlendis, lítið hér á innlendum markaði. Mest af kostnaði þeirra er greiðsla fyrir íslenska orku. Ég get því ekki séð að það sé neitt sérstakt vandamál. Þar að auki hefur íslenska krónan staðið sig tiltölulega vel að undanförnu og hún er því ekki sú hindrun sem kom fram í máli hv. þm. Ég tel að staðið sé algjörlega eðlilega að málum og það beri að gera það áfram. Ég er alveg viss um að hv. þm. mundi sjá það ef hv. þm. stæði frammi fyrir því að bera ábyrgð á þessum málum og bæri ábyrgð á framtíð þjóðarinnar í þeim mæli sem hún gerir þegar hún stendur að ríkisstjórn.