Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Gert var ráð fyrir því að hér yrði kvöldfundur. Ekki var talað um næturfund. En nú er klukkan komin fram yfir miðnætti. Á dagskrá fundarins voru 57 þingmál. Þingið hefur í dag afgreitt 40 þingmál.
Nú vil ég beina því til hæstv. forseta að við förum að ljúka þessum fundi. Nokkur þingmál eru enn eftir. Þingmálið sem nú er til umræðu er enn órætt að fullu. Einhverjir þingmenn eru enn á mælendaskrá. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. forseta að við förum að ljúka þessum degi. Gert er ráð fyrir þingstörfum í fyrramálið kl. 8. Við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði teljum ekkert eftir okkur að vinna langan vinnudag, enda eru margir þingmenn, flestir þingmenn þingflokksins í þinghúsinu. Það á ekki við um alla aðra þingflokka þótt hér séu nokkrir þingmenn og hæstv. ráðherra enn til staðar. Ég vil beina því til hæstv. forseta að við ljúkum þessari umræðu nú og gerum hlé á störfum þingsins þar til fyrramálið.