Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. utanrrh. úr því að svo vel ber í veiði að hér mælir fyrir frv. hæstv. utanrrh., starfandi forsrh. og jafnframt formaður Framsfl. hvað hafi orsakað hinn algera viðsnúning Framsfl. í málinu. Formaður þingflokks framsóknarmanna boðaði í marsmánuði 2001 harða andstöðu flokksins við þetta mál og taldi framgöngu hæstv. forsrh. furðulega þegar hann lýsti því yfir í fjölmiðlum að leggja ætti stofnunina niður. Ef ég man rétt, þá var hæstv. utanrrh. sjálfur stuttur í spuna og sagði að málið væri órætt í ríkisstjórn. Síðan var fjölmiðlaumfjöllun um málið á þann veg mánuðum saman og var látið ómótmælt að Framsfl. væri andvígur því að leggja niður Þjóðhagsstofnun. Ég spyr því hæstv. utanrrh.: Hvað olli sinnaskiptum Framsfl. í málinu? Hvaða rök hefur flokkurinn fyrir því að snúa við blaðinu og bera nú hér fram eða standa að frv. um að leggja Þjóðhagsstofnun niður sem flokkurinn hafði áður lýst sig andvígan?