Framhald þingfundar

Miðvikudaginn 10. apríl 2002, kl. 18:02:16 (7467)

2002-04-10 18:02:16# 127. lþ. 117.93 fundur 502#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), ÞBack (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 117. fundur, 127. lþ.

[18:02]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Ég stíg hingað upp til að spyrja hæstv. forseta hvort hann geti gefið okkur einhverjar upplýsingar um hvað hann áætli að þessum fundi verði haldið áfram langt fram á kvöld. Við höfum setið nokkuð drjúgt við þessa vikuna. Hér hafa verið næturfundir og kvöldfundir og nefndarfundir snemma morguns. Fram undan er erfið nefndarvinna og mér þætti ósköp vænt um að fá upplýsingar um framhald umræðunnar í kvöld.

Sjálf teldi ég ósköp heppilegt að ljúka umræðunni eftir þetta mál, um kvöldmatarleytið, og hafa ekki kvöldfund.