Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það hefur gengið afskaplega vel að auka þjóðarframleiðsluna. Ég er alveg fullviss um það að okkur mun takast það á næstu árum miðað við þau áform sem eru í atvinnumálum á Íslandi og að sjálfsögðu skiptir það máli til þess við getum lagt meira af mörkum í þessu samhengi.
Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að auka okkar hlut. Það er nauðsynlegt að gera það hægt og sígandi. Það er ekki nóg að moka út peningum. Það verður að skipuleggja verkefnin og það höfum við gert. Það tekur tíma að koma þessum verkefnum á góðan rekspöl. Ég tel að við séum búin að byggja upp mjög góðan grunn fyrir þróunaraðstoð okkar og það hafi tekist vel til á undanförnum árum og allir möguleikar séu á því að halda áfram að auka framlög okkar. Það verðum við að gera en til þess þurfum við að hafa góðar aðstæður. Þetta er ekki bara spurningin um peninga heldur líka hvaða gagn verður að þeim.
Ég endurtek að ég tel að Bandaríkjamenn hafi sent jákvæð skilaboð á þessari ráðstefnu. Það má vel vera að hv. þm. finnist allt vont sem kemur frá Bandaríkjamönnum. Hann ásakar mig um að vera jákvæður í garð Bandaríkjamanna í ákveðnum málum vegna þess að ég vilji koma mér í mjúkinn hjá þeim. Þetta er alrangt. Ég er hins vegar ekki á þeirri skoðun að það sé alveg sama hvað Bandaríkin geri, það eigi að tala neikvætt um alla hluti. (Gripið fram í.) Það gerir hv. þm. iðulega.
Hv. þm. ásakar mig hvað eftir annað fyrir að taka alltaf sérstaklega undir með Bandaríkjamönnum. Ég tek undir með Bandaríkjamönnum í þeim málum sem mér finnst ástæða til að taka undir. Þeir hafa lagt margt jákvætt af mörkum í heiminum og halda áfram að gera það, sem stærsta og öflugasta ríki veraldar. Að sjálfsögðu vilja Íslendingar eiga góða samvinnu við þá en það virðist hv. þm. ekki vilja.