Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil taka það fram að að sjálfsögðu viljum við í heilbrrn. fylgjast sem best með í þessum efnum. Við höfum reyndar haft veður af því sem nágrannaþjóðirnar gera í þessu efni. Ég tel að taka verði þessi mál til umræðu og grípa til aðgerða hjá okkur. Ég tel að það sé tækifæri til þess núna, einmitt þegar verið er að gera stórátak í heilbrigðiskerfinu í bættri þjónustu við börn. Það hefur auðvitað í för með sér endurskipulagningu á starfsemi stærstu stofnunarinnar sem vinnur á þessu sviði. Ég tel að þessi þáttur muni vissulega koma þar inn en ég sagði reyndar í svari mínu að ég teldi að þarna ætti Barnaspítalinn að leika lykilhlutverk.
Ég endurtek þakkir til fyrirspyrjanda fyrir að taka þetta mál upp því ég tel að þarna þurfi að fylgjast grannt með og finna út hvernig þessum málum verði best fyrir komið.