Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Forseti vill láta þess getið að það er mikið annríki í þinginu og ástæður fyrir því að ýmsum liðum hefur verið vikið út af dagskrá eru margar, m.a. þær að hæstv. ráðherrar hafa verið uppteknir við störf sín annars staðar eins og gengur og gerist. Þess vegna hefur nú, eins og oft áður, verið gripið til þess ráðs að hagræða dagskrá, bæði þingmönnum í vil sem ekki hafa verið í þingsalnum þegar að þeim hefur komið og eins hafa ráðherrar verið fjarstaddir. Nú hyggst forseti kappkosta að halda áfram dagskránni þannig að henni megi ljúka sem allra fyrst.