Þjóðhagsstofnun o.fl.

Fimmtudaginn 18. apríl 2002, kl. 22:30:05 (7832)

2002-04-18 22:30:05# 127. lþ. 122.1 fundur 709. mál: #A Þjóðhagsstofnun o.fl.# frv. 51/2002, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 127. lþ.

[22:30]

Jón Bjarnason (andsvar):

Hæstv. forsrh. veit að þegar manni er trúað fyrir að taka ákvarðanir á grundvelli forsendna sem manni er skylt að byggja á þá tekur maður þær ákvarðanirnar og ber ábyrgð á þeim. Það eigum við að gera í hvaða starfi sem við erum, hvort við erum forsætisráðherrar, skólastjórar, sjómenn, verkamenn eða bændur. Þá öxlum við ábyrgð á starfi okkar.