Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Í máli hæstv. ráðherra kom ekki fram hvað geri það að verkum að málið fær þá meðferð sem beðið er um hér af hálfu ríkisstjórnarinnar, þ.e. það er sett á dagskrá með afbrigðum. Rétt væri að hæstv. ráðherra skýrði okkur frá hvað í aðstæðum fyrirtækisins geri það að verkum að svo mikið liggur á að málið verði samþykkt með hraði á vorþingi. Ég tel að hæstv. ráðherra þurfi að skýra örlítið betur fyrir þingheimi hvað sé hér í farvatninu.