Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég er undrandi á þessum málflutningi hv. síðasta ræðumanns. Getur hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir bent á nokkurt annað land í veröldinni sem stendur jafnframarlega og við Íslendingar gerum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda? Ég bara spyr.
Það er skylda íslenskra yfirvalda að gæta hagsmuna Íslands til þess að við getum nýtt þau gæði sem við fáum með nýtingu orkunnar til atvinnuuppbyggingar. Það er skylda okkar að gæta þess að við getum nýtt okkur þessi gæði til atvinnuuppbyggingar. Það er nú ekkert minna en það. Og það voru íslensk stjórnvöld að gera með því að leggja áherslu á að fá undanþágu frá Kyoto-bókuninni vegna þess að við vorum einfaldlega komin langt á undan öðrum þjóðum og vorum í fararbroddi hvað þessi mál varðar.